Prentsmiðjan Stafur
Fyrsta verkefni annarinnar var að hanna útlit, andlit og auglýsingaherferð fyrir fyrirtæki sem okkur var úthlutað.
Ég fékk Prentsmiðjuna Stafur.
Prentsmiðjan Stafur er framsækið fyrirtæki með reynslumikla starfsmenn sem sjá um alhliða prentþjónustu. Prentsmiðjan Stafur leggur mikið upp úr sjálfbærni, sköpun, heilbrigði og jafnréttisstefnu.
Slagorð:
1. Hraði, gæði og persónuleg þjónusta.
2. Lausnamiðuð prentþjónusta.
3. Betri leið til að prenta.
4. Þitt afrek í blek.
Einkennislitir Prentsmiðjunnar Stafur eru blár (Cyan), gulur (Yellow) og svartur (Black).















