Fyrri önn.
Á fyrri önninni var lögð áhersla á öll helstu grunnatriði sem þarf að hafa í huga þegar kemur að grafískri miðlun. Þ.e. tæknileg vinnsla, reglur og viðmiðanir o.s.frv. Við unnum m.a. öll gögn (t.d. lógó, bréfsefni, auglýsingar) fyrir ímyndað fyrirtæki, umbrot á bók og unnum allt auglýsingaefni fyrir annað ímyndað fyrirtæki.
Seinni önn.
Seinni önnin var skemmtileg en krefjandi að því leyti að verkefnin voru töluvert stærri og tæknilegri. Fyrsta verkefnið fólst í því að brjóta um heila bók þ.e. Æskan og skógurinn. Síðan að hanna og vinna öll ráðstefnugögn fyrir jafnréttis-ráðstefnu. Og Lokaverkefnið fólst í því að hanna einstaklingstímarit og allar auglýsingar í það.