EMBLA

Lokaverkefni seinni annar er lífsstílstímaritið Embla. Hver nemandi setur upp níu efnissíður og eina síðu með leiðara, blaðhaus og efnisyfirliti, auk kynningaropnu. Þar að auki á hver nemandi að hanna þrjár heilsíðuauglýsingar og eina kápu, samtals eru þetta því 16 síður.

Emblan mín fjallar um andlega heilsu á tímum COVID og hvað maður getur gert mikið með því að gefa sér tíma fyrir sjálfan sig. Ásamt því fjalla ég um list þ.e. listina að lifa og listina á bak við matarlyst. Þar sem ég tek viðtal við einstaklega hæfileikaríkan eftirréttakokk sem sýnir mér listir sínar og talar um að fylgja hjartanu (eða í þessu tilviki, heimilisfræðikennaranum).

Upphaflega hugmyndin af kápunni átti í raun að vera allt önnur, þá með einhverskonar geim ívafi. Hinsvegar breyttist sú hugmynd yfir í að hafa svarthvíta og stílhreina kápu, og þaðan af kom sú viðbót að hafa sterkan lit sem kallar á augað. Kápuhönnunin var því ákveðið ferðalag útaf fyrir sig.

Lokaútkoman er þó hér fyrir neðan og ykkur er velkomið að fletta í gegnum hana.

PRENTFORMAR

Previous
Previous

TILHEYRA