RÁÐSTEFNUVERKEFNI

Ráðsefnuverkefnið er án efa stærsta verkefni annarinnar. Verkefnið snýst um að búa til ímynduð samtök sem halda ráðstefnu um jafnréttismál í Hörpu. Samtökin þurfa nafn, stefnumál, áherslur og kennimerki. Auk þess þurftum við að hanna öll gögn í kringum ráðstefnuna þ.e. auglýsingar, dreifibréf, barmmerki, tvo aukahluti, dagskrá, möppu, umbúðir, matseðil og app.

Samtökin TILHEYRA leitast eftir því að skapa málefnalega umræðu um einstaklinga sem eru heimilslausir og ýta undir að þeirra grunnmannréttindi sé uppfyllt.

Nýjar stefnur í nálgun við hýsingu hjá þeim sem glíma við áföll, heimilisleysi, geðrænan vanda og/eða eru ánetjuð fíkniefnum. Veita aðhald og bjóða upp á skammtaþjónustu á öruggan máta. Að þeim sé veitt húsnæði og vinnu.

Sálfræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að aukin lífsánægja hjá fólki, upplifunin að tilheyra, vera mikilvæg og megnug, hefur ýtt undir minni fíkniefna notkun. Þó að aðalatriðið sé að þau nái að fóta sig aftur að stað í samfélagið, græða sárin og taka aftur virkann þátt.

Þessi ráðstefna er því sett til að leggja áherslu á hvað við getum gert sem samfélag, hvernig getum við komið að stað lausnum og úrræðum fyrir fólk án heimils.

Merki samtakanna vísar í að rétta hjálparhönd, gefa tækifæri og bjóðum upp á ný úrræði í meðferðarstarfi!

Þú ert til, og þú átt rétt að TILHEYRA!

Previous
Previous

ÆSKAN OG SKÓGURINN

Next
Next

EMBLA